Það verður væntanlega líf og fjör í Þjóðbraut á Hringbraut í fyrramálið þegar Sigurjón M. Egilsson fær til sín mæta gesti í umræðuþátt sinn. Helsti gestur þáttarins verður Rangheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Til að ræða helstu atburði liðinna daga koma Bjarni Ólafsson, ritstjóri Viðskiptablaðsins, Egill Helgason fjölmiðlamaður, og Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff.
Sótt er að Ragnheiði Elínu í oddvitasæti Sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi og hún er sögð vera einstaka verklítil í embætti. En er svo? Því og öðru svarar Ragnheiður Elín í þætti morgundagsins.
Víst er að einnig verður rætt um Tyrkland, þar sem Egill Helgason þekkir ágætlega vel til, auk margra annarra knýjandi mála, enda styttist óðum í næstu þingkosningar.
Auk þess sem hér hefur verið nefnt mun Sigurjón, ásamt Lindu Blöndal, skoða skopteikningar dagblaðanna, og Linda rifjar upp nokkur af fjölmörgu viðtöðum Þjóðbrautar í vikunni sem er að ljúka.
Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar milli klukkan 10 og 12 á morgun, sunnudag.