Pistlar
Fimmtudagur 26. mars 2020
Forsíða

Nýtt hagkerfi?

Stjórnvöld í Evrópu og víða um heim hafa síðustu daga gert grein fyrir mestu efnahagsráðstöfunum, sem sögur herma. Víðast hvar er um sams konar aðgerðir að ræða.

Yfirleitt hafa Seðlabankar tekið forystu og ríkisstjórnir komið í kjölfarið. Hér hjá okkur hefur framgangur þessara mála verið með svipuðum hætti.

Forsíða

Vega peningar þyngra en mannslíf?

Erum við að verja okkar veikasta fólk? Erum við að verja okkar veikasta fólk með því að byggja upp hjarðó­næmi, vitandi að fólk mun láta lífið.

Forsíða

Hvern fjandann er maðurinn að fara: Hver er glæpurinn!?

Stundum getur manni of­boðið. Kári Stefáns­son veður hér upp í fjöl­miðlum, nánast að vild, að því er virðist, og halda margir rit­stjórar og frétta­menn greini­lega, að flest það, sem frá Kára kemur, sé merki­legt vel, frétt­næmt mjög og nánast ein­hver snilld.

Miðvikudagur 25. mars 2020
Forsíða

Níðst á veiku fólki

Um síðast­liðna helgi birtist yfir­lýsing frá yfir­völdum þar sem sagði: „Sund­laugum, líkams­ræktar­stöðvum, skemmti­stöðum, spila­sölum, spila­kössum og söfnum skal lokað meðan á þessum tak­mörkunum stendur.“

Forsíða

Hvatt til refsiverðrar háttsemi?

Stjórn­völd á Ís­landi hafa nú látið boð út ganga um að­gerðir vegna út­breiðslu á Covid-19 veirunni, m.a. vegna skað­legra efna­hags­legra á­hrifa af henni. Verði meðal annars gripið til þess ráðs að bjóða fyrir­tækjum, sem orðið hafi fyrir a.m.k. 40% tekju­missi, ríkis­á­byrgð á 50% nýrra lána sem fyrir­tækin fái hjá við­skipta­bönkunum. Sýnist þá gert ráð fyrir að bankarnir muni sjálfir bera 50% á­hættu af þessum lánum, ef þeim sem lánin taka tekst ekki að endur­greiða þau.

Þriðjudagur 24. mars 2020
Vilhjálmur Birgisson skrifar

Fyrirgefið en djöfull er ég búinn að fá uppí kok af þessu fjármálakerfi!

Hef örlítið verið að skoða hvernig vaxtabreytingar viðskiptabankanna hafa verið að skila sér til neytenda bæði hvað varðar innlán sem og útlán. Ég miða við vaxtabreytingar eftir að Seðlabankinn hóf að lækka stýrivexti sína eftir Lífskjarasamninganna, en rétt áður en þeir voru undirritaðir þá voru að stýrivextir 4,5% í dag eru þeir komnir niður í 1,75% og hafa því lækkað um 2,75%.

Mánudagur 23. mars 2020
Björn Leví Gunnarsson skrifar

Stjórn­mál sem við þurfum í dag

Það er alltaf tími fyrir eftir­lit gagn­vart þeim sem fara með vald en sá tími er mis­mikill. Í neyðar­á­standi er sá tími tví­mæla­laust minni en annars vegna þess að neyðar­á­standið krefur fólk um eins ó­skipta at­hygli og hægt er að gefa, annars væri ekki um neyðar­á­stand að ræða.

Sunnudagur 22. mars 2020
Forsíða

Fólk er að deyja en Per­sónu­vernd segir: „Við af­greiðum þetta eftir helgi“

Sú far­sótt sem gengur nú yfir heiminn á enga sína líka. Hún hefur breiðst út eins og eldur í sinu og veldur ringul­reið alls staðar og þjáningu og dauða. Við­brögðin við henni eru slík að annað eins hefur aldrei sést. Lönd hafa lokað landa­mærum sínum, skólum hefur verið lokað og öllum sam­komu­stöðum og víða er út­göngu­bann í gildi. Markaðir hafa hrunið og efna­hagur landsins okkar er að kikna. Heimurinn eins og við höfum þekkt hann er horfinn og við okkur blasir ný til­vera og ógn­vekjandi.

Sunnudagur 15. mars 2020
Forsíða

Í stofufangelsi á Tenerife: „Þetta eru skrýtnir tímar“

Þetta eru skrýtnir tímar. Spænska ríkis­stjórnin hefur lýst yfir hálf­gerðri ein­angrun þjóðarinnar næstu vikurnar og þar á meðal einnig mér. Upp­haf­lega átti bannið að ríkja frá mið­nætti á sunnu­dags­kvöld, en í gær­kvöldi var á­kveðið að flýta ein­angruninni og tók hún gildi síðast­liðið mið­nætti. Ég segi hálf­gerðri ein­angrun því hér ríkir sam­komu­bann. Bar-Inn er lokaður, væntan­lega einnig Nostalgía og Bam­bú sem og aðrir veitinga og skemmti­staðir. Allar aðrar verslanir en mat­vöru­verslanir og lyfja­búðir eru lokaðar.