Píratar mótfallnir höfundarréttartilskipun esb

Á Evrópuþinginu í dag var samþykkt höfundarréttartilskipun sem felur m.a. í sér hertar kröfur um notkun og miðlun fréttaefnis á internetinu og sjálfsritskoðun notenda þegar þeir hlaða upp efni. Í tilkynningu frá þingflokki Pírata segir að flokkurinn muni beita sér gegn því að tilskipunin verði tekin upp í EES- samninginn óbreytt.

Píratar segja tilskipunina varhugaverða aðför að hinu frjálsa og opna Interneti. „Tilskipunin felur í sér hertar kröfur um notkun og miðlun fréttaefnis á Internetinu og einnig er þjónustuveitum á borð við Facebook, Google, Youtube og í raun meginþorra vefsíðna sem leyfa notendum að hlaða upp efni, gert að ritskoða það efni sem birtist hjá þeim til að tryggja að höfundarréttarvarið efni birtist ekki á síðum þeirra. Slíkar sjálfvirkar síur eru ónákvæmar og tæknin enn ófullkomin sem mun leiða til þess að þjónustuveitendur munu sía út meira magn af efni en minna til að baktryggja sig fyrir lögsóknum.“

„Slíkt er ekkert annað en ritskoðun Internetsins og ljóst að fjölmörg fyrirtæki muni ekki geta staðið undir þessum kröfum nema þau allra fjársterkustu. Mun þetta leiða til þess að minni þjónustuveitur leggjast af og mjög erfitt verður að stofna nýjar þjónustuveitur á Internetinu,“ segir einnig í tilkynningunni.

Flokkurinn telur að með því að láta fyrirtæki bera ábyrgð á því efni sem birtist, í stað þess að ábyrgðin sé aðeins notendanna, sé verið að takmarka frelsi íbúa Evrópu til að tjá sig. „Líkja mætti þessu við að símafyrirtæki á Íslandi yrðu skikkuð til að hlera öll símtöl til að tryggja að aðeins þóknanlegar upplýsingar kæmust á milli manna.“

Píratar á Íslandi segjast standa þétt við bakið á Juliu Reda, Evrópuþingmanni Pírata og eins helsta talsmanns gegn þessari lagasetningu, sem hafi verið óþreytandi í baráttunni gegn frekari ritskoðun internetsins. „Er hún fremst í flokki hundruða sérfræðinga og tuga stofnana sem hafa mótmælt þessari vegferð, þar á meðal David Kaye, sérstaks talsmanns Sameinuðu þjóðanna um vernd tjáningarfrelsis, og Tim Berners-Lee, föður veraldarvefsins.“

„Internetið er ekki staðbundið. Við sem Íslendingar notum mikið af þjónustu, fréttamiðlum og öðru frá fyrirtækjum sem staðsett eru í Evrópu. Það er því nauðsynlegt að berjast gegn hvers kyns ritskoðun og takmörkun á tjáningarfrelsi sem er hornsteinn frjálsra lýðræðisríkja,“ segir að lokum í tilkynningunni.