Ný könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið sem gerð var 19. til 22. júní sýnir Pírata með 28% fylgi, Sjálfstæðisflokk með 19,7%, VG með 17,5%, Viðreisn með 9,7%, Framsókn með 9,5%, Samfylkingu með 9% og BF með 4,5%.
Píratar tapa 1,9% fylgi frá síðustu könnun sem gerð var 8. til 12. júní. Sjálfstæðisflokkurinn tapar 3% og Framsókn missir 1,6%. VG bætir við sig, Samfylking einnig og Viðreisn heldur áfram að stækka en ekki er liðinn nema einn mánuður síðan flokkurinn var stofnaður.
Samkvæmt þessari könnun gætu þingsæti skiptst þannig: Píratar fengju 18 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur 13, VG 12, Viðreisn 7, Framsókn 7 og Samfylking 6 þingmenn. Ef þetta yrði niðurstaða kosninga væri ekki hægt að mynda tveggja flokka stjórn en þrjá flokka þyrfti til að ná þingmeirihluta. Ríkisstjórnarflokkarnir væru samkvæmt þessari könnun með samtals 20 þingmenn en fengu 38 þingmenn í kosningunum vorið 2013.
Hafa ber í huga að Bjarta framtíð vantar einungis hálft prósentustig til að ná inn þingmönnum samkvæmt þessari könnun. Ef þeir fengju 5% fylgi yrðu þingmenn þeirra 3. Ekki er ljóst hvaðan þeir kæmu en trúlega myndi fækka um einn þingmann hjá Pírötum og annan hjá VG.