Pawel Bartoszek segir í grein í Fréttablaðinu í dag að það stórauki bílaumferð að færa Landspítalann út í jaðar höfuðborgarsvæðisins.
Pawel skipar 2. sæti framboðslista Viðreisnar í Reykjavík og prýðir forsíðu blaðsins í dag ásamt oddvita framboðsins, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur.
„Umferð er ekki bara einkabílar. Umferð er líka þeir sem labba, hjóla eða taka strætó. Sé litið á umferðina í þessum eðlilega, víða, skilningi er flutningur Landspítalans frá Reykjavík til úthverfa Garðabæjar vond hugmynd.Þúsundir starfsmanna spítalans sem í dag labba, hjóla, eða taka strætó í vinnuna verða neyddir til að fara á bíl,\" segir Pawel.
„Samkvæmt ferðavenjukönnun spítalans frá árinu 2016 fóru 29% starfsmanna oftast gangandi eða hjólandi í vinnuna. Enda má ætla að um 20.000 manns búi í göngufæri við spítalann. Það býr enginn í göngufæri við Vífilsstaði,\" segir hann í greininni.