Pabbi sagði við mig: ég styð þig í öllu námi - en gerðu það sem þér finnst skemmtilegt!

Þeir Jón G. og Benedikt Eyjólfsson, Benni í Bílabúð Benna, ræða um föður hans, Eyjólf Konráð Jónsson, Eykon, sem var þingmaður, ritstjóri og athafnamaður; mikill eldhugi. Um það hvaða ráð Benni hafi fengið frá föður sínum stendur ekki á svarinu: „Hann gaf mér mörg ráð og studdi mig og hvatti á allan hátt. Helsta ráðið sem hann gaf mér og ég hef farið eftir var þetta; ég styð þig í öllu námi sem þú vilt fara í - en gerðu það sem þér finnst skemmtilegt!“

Þáttinn í heild sinni má nálgast hér: