Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum á Vesturlandi. Ákvörðunin er byggð á því að rignt hefur víðast hvar á Vesturlandi undanfarið og næstu daga er spáð úrkomu af og til víðast hvar. Þetta kemur fram á vef Almannavarna.
Það er því mat lögreglunnar á Vesturlandi að telja megi að ástand sé að verða svipað og í venjulegu tíðarfari. Óvissustigi vegna hættu á gróðureldum á Vesturlandi var lýst yfir 11. júní síðastliðinn vegna langvarandi þurrka.
Á vef Almannavarna segir að þrátt fyrir að óvissustigi hafi nú verið aflýst hvetji viðbragðsaðilar eftir sem áður fólk til að sýna aðgát í meðferð opins elds og eldunartækja þar sem mikill gróður er.
Þegar óvissustigi almannavarna er lýst yfir þýðir það að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.