Óvæntur hagnaður hjá norwegian

Rekstur Norwegian, umsvifamesta flugfélags Norðurlanda, skilaði sem samsvarar um fjögurra milljarða króna hagnaði á öðrum ársfjórðungi. Á sama tíma í fyrra nam tapið um 9 milljörðum og er óhætt er að segja að þessi niðurstaða, sem kynnt var í morgun, hafi komið greinendum á óvart. Síðustu daga hafa norrænir bankar og fjármálastofnanir nefnilga spáð því að tapið af rekstrinum yrði á að jafnaði álíka mikið og í fyrra samkvæmt frétt Dagens Næringsliv.

Turisti.is segir frá. 

Í frétt norska viðskiptablaðsins er haft eftir fjármálastjóra Norwegian að ein helsta skýringin á hinni jákvæðu afkomu megi skrifa á hagstæðari kjör hjá birgjum, til að mynda á leigu flugvéla. Þetta skilaði fyrirtækinu rúmum fimm milljörðum króna og var sú upphæð öll tekjufærð á síðasta ársfjórðungi. Hagstæð gjaldeyrisþróun skilaði álíka hárri upphæð.

Vöxtur Norwegian hefur verið mjög hraður síðustu ár og þannig jókst framboð flugfélagsins um nærri helming á síðasta ársfjórðungi. Fjárhagslegur styrkleiki félagsins hefur hins vegar verið töluvert til umræðu enda þurfti félagið að leita eftir auknu hlutafé nú í vor. Móðurfélög British Airways og Lufthansa hafa lýst yfir áhuga á að kaupa félagið en tveimur tilboðum frá því fyrrnefnda hefur verið hafnað.

Norwegian flýgur til Íslands frá Ósló, Bergen, Stokkhólmi, London, Madríd, Barcelona, Alicante og Róm.