Nú stendur yfir leit innan Samfylkingarinnar á suðvesturhorninu að vænlegum frambjóðendum fyrir komandi kosningar.
Flokkurinn á sem stendur enga þingmenn á höfuðborgarsvæðinu. Stillt verður upp á lista.
Konur eru áberandi í umræðunni. Í Reykjavík er einkum talað um Heiðu Björgu Hilmisdóttur varaformann flokksins, en einnig þær Evu H. Baldursdóttur og Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur. Þá er nafn Gunnars Alexanders Ólafssonar nefnt, en þessi þrjú síðastnefndu áttu öll sæti ofarlega á lista í síðustu kosningum.
Þá er Helga Vala Helgadóttir oft orðuð við framboð.
Í Kraganum svokallaða eru einkum nefndar þær Margrét Gauja Magnúsdóttir og Margrét Tryggvadóttir, sem báðar voru í framboði síðast. Þá mun Gunnar Axel Axelsson vera að hugsa málið, en þau Margrét Gauja eru bæjarfulltrúar í Hafnarfirði.
Loks er nefnt óvænt nafn sem mörgum þykir vænlegt. Það er Flosi Eiríksson, sem var árum saman oddviti flokksins í Kópavogi og er sagður njóta stuðnings langt út fyrir flokksraðir.