Thelma nánast óþekkjanleg - 74 kíló farin: „ég var feit og þurfti að taka á því“

Thelma Ásdísardóttir hefur misst 74 kíló og hefur aldrei liðið betur. Thelma vakti mikla athygli þegar bókin Myndin af pabba: Saga Thelmu kom út árið 2005. Þar skráði rithöfundurinn Gerður Kristný átakanlega sögu Thelmu og fjögurra systra hennar af kynferðisofbeldi sem faðir þeirra og aðrir barnaníðingar beittu þær um langt skeið.

Thelma fékk loks á fullorðins aldri aðstoð frá Stígamótum og hefur sjálf unnið ötullega að því að hjálpa brotaþolum ofbeldis. Í athyglisverðu viðtali í Vikunni segir Thelma frá því hvernig hún hafi ekki einungis tekist á við andlegar afleiðingar ofbeldisins sem hún varð fyrir, heldur einnig líkamlegum afleiðingum.

„Ég er búin að vera að gera alveg helling fyrir sjálfa mig. Ég var lengi í mikilli ofþyngd, var bara vel feit og hef aldrei verið feimin við að viðurkenna það, lít ekki á það sem neina skömm. Fyrir mér var þetta bara staðreynd; ég var feit og þurfti að taka á því,“ segir Thelma.

Hún segist hafa vitað það í nokkurn tíma að um væri að ræða verkefni sem kæmi að því að hún myndi þurfa að taka sér fyrir hendur. „Ég fann að líkama mínum leið ekki eins og honum átti að líða, hann var ekki í sínu rétta elementi. Þannig að ég undirbjó mig vel, gerði áætlun og ákvað að taka þetta í skrefum en ekki kasta mér í einhver glórulaus læti. Ég hafði prófað það áður og veit að svona kúrar og einfaldar töfralausnir virka náttúrlega bara alls ekki til lengdar þannig að ég skoðaði hvað virkar fyrir mig.“

\"\"

Árangurinn er eftirtektarverður, enda er Thelma búin að losa sig við 74 kíló. Kveðst hún hafa tekið á nánast öllum þáttum sem hafi verið í ólestri.

„Fyrsta skrefið var að auka vatnsdrykkju. Ég hef reyndar alltaf verið dugleg við að drekka vatn en ég ákvað að halda betur utan um það. Svo fór ég að ganga og ég gleymi aldrei fyrsta göngutúrnum sem var um það bil fjögur hundruð metrar, því eftir hann leið mér eins og ég hefði klifið fjall. Núna geng ég hiklaust tíu kílómetra á dag án þess að finna fyrir því, þannig að ýmislegt hefur breyst,” segir hún.

Fyrir einu og hálfu ári tók hún fyrsta skrefið í átt að nýjum lifnaðarháttum en mikilvægustu breytinguna gerði hún fyrir ári síðan. Þá tók hún út sykurinn og fór þá fyrst að sjá verulegan mun á sér. „Þegar þetta var allt komið saman; fastan, sykurleysið og hreini maturinn, fóru stórir hlutir að gerast. Síðan ég tók sykurinn út hafa 63 kíló farið en í heildina eru farin 74 kíló, þannig að það er farinn heill karlmaður af konunni.“