Bæði framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) og formaður Sjómannasambands Íslands segja rangt að boða sjómenn út í skip í gær áður en ljóst var hvort samningurinn yrði felldur eða samþykktur.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins segja á Bryggjunni í kvöld að rangt hafi verið af þeim útgerðum sem það gerðu, að boða menn út á sjó áður en hvort ljóst var hvort samningurinn yrði samþykktur af sjómönnum. Heiðrún Lind segir að slíkt hefði átt að gera með fyrirvara alla vega um að samningar færu á jákvæðan veg.
Linda Blöndal fær svör Heiðrúnar og Valmundar um hvað samningur þýði og líka hvaða augum þau líta framgöngu sjávarútvegsráðherra á lokametrum deilunnar.