Össur: núna hentar sigmundi og miðflokknum að berjast gegn orkupakkanum

„Á degi krossfestingarinnar er einkar vel til fundið hjá miðli allra landsmanna – Stundinni – að rifja upp að þegar Sigmundur Davíð var forsætisráðherra þá virtist hann hugfanginn af þriðja orkupakkanum. Honum lá amk. svo á að taka hann upp í íslensk lög að hann barði gegnum Alþingi samþykkt á einum mikilvægasta hluta pakkans – löngu áður en hann var tekinn upp í EES samninginn.“

Þetta segir Össur Skarphéðinsson fyrrverandi ráðherra í pistli sem birtur er á Hringbraut sem Össur nefnir Orkupakkinn og krossfestingin. Þar vitnar Össur í Stundina sem hefur rifjað upp að ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar innleiddi reglur úr þriðja orkupakkanum áður en EES-nefndin samþykkti þær. Össur segir:

„Jafnvel okkur ræflunum sem vorum þó bæði hlynnt orkupakka og Evrópusambandi þótti nóg um asann. En þetta var á þeim dögum þegar núverandi formaður Miðflokksins átti löng samtöl við Breta, m.a.s. sjálfan David Cameron, forsætisráðherra Breta, um sölu á raforku um streng til Bretlands.“

Þá segir Össur: „Í Bretlandi bjuggust menn reyndar við að Sigmundur myndi boxa Cameron út af Icesave, og fjölmiðlar urðu undrandi á því hversu vel fór á með þeim í Íslandsheimsókn Camerons. Þar slitnaði ekki slefan á milli. Breskir fjölmiðlar gátu þess að hann hefði farið viðurkenningarorðum um Davíð Cameron sem “guðföður” tengslahóps norðurevrópskra ríkja. Gárungar veltu fyrir sér hvort nóg væri að menn hétu Davíð til að íslenski forsætisráðherrann fengi á þeim pólitíska ást.“

„Athyglisverðast við þröngvun núv. formanns Miðflokksins á mikilvægri löggjöf orkupakkans gegnum þingið var að hún laut einmitt að orkusölu um streng til útlanda. Þar var bókstaflega talað um að taka þyrfti mið af „raunhæfum sviðsmyndum“ um orkusölu,“ segir Össur og bætir við að Sigmundur Davíð, Gunnar Bragi Sveinsson og Þorsteinn Sæmundsson – sem allir eru þingmenn Miðflokksins í dag hafi tekið þátt í þessu. Össur bætir við: „Meira að segja helsti baráttumaður gegn orkupakkanum í dag, Frosti Sigurjónsson, gerði það líka. Hann hefur sem kunnugt er stofnað sérstök samtök gegn orkupakkanum sem hann studdi þó á þessum degi.“

Össur heldur áfram: „VG var sem kunnugt er á móti orkupakkanum þangað til flokkurinn fór í ríkisstjórn. Á þessum tíma lagði því VG fram tillögu um að fella að minnsta kosti burt orðalag um stuðning við raforkusölu um streng til útlanda.“

Segir Össur að Sigmundur hafi hafnað þessu og greitt atkvæði á móti.

„Hann studdi semsagt að hafa inni ákvæði um “raunhæfar sviðsmyndir” um orkusölu til útlanda. Ekki bara hann. Allir núverandi þingmanna Miðflokksins sem þá sátu á Alþingi voru sama sinnis. Meira að segja heiðursmaðurinn og samviska góðra Framsóknarmanna, Frosti Sigurjónsson, greiddi atkvæði gegn brottfellingunni.“

Össur segir að lokum:

„Í þá daga sat Sigmundur á hjali við breskan forsætisráðherra um möguleika á því að selja rafmagn til Bretlands. Í dag hentar það Miðflokknum að berjast gegn orkupakkanum af því hugsanlega nær hann útá það að tína til sín einhver atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum. Svona eru íslensk stjórnmál í dag.

Það breytir engu um þá staðreynd, að það var Sigmundur Davíð og hans menn í Miðflokknum sem ruddu brautina fyrir orkupakkann. Þeir brutu ísinn, og innleiddu úr honum stóra hlúnka löngu áður en þess var þörf. Þetta er hollt að rifja upp á degi krossfestingarinnar.“