Fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar, sem hefur ekki enn fundist eftir að hafa horfið sporlaust á Írlandi fyrir sléttum tveimur mánuðum, biðlar til spámiðla og sjáenda að hafa ekki samband með fölskum upplýsingum um hvar það telji Jón Þröst niðurkominn. Þetta kemur fram í færslu sem fjölskyldan birtir á Facebook síðu um leit að Jóni Þresti.
Í yfirlýsingunni segir fjölskyldan að hún hafi fengið ótal hvatningarskilaboð og samhygð frá bæði vinum og ókunnugum og að slík skilaboð hafi spilað lykilhlutverk í að halda þeim gangandi á erfiðum tímum.
Einnig segjast þau hafa fengið fjölda skilaboða frá fólki sem segist vera spámiðlar eða sjáendur, sem segjast hafa mikilvæg skilaboð um hvar Jón Þröstur sé niðurkominn. „Eftir því sem dagarnir líða aukast þessi skilaboð og þau vísa öll í ólíkar áttir,“ segir í yfirlýsingunFjölskylda Jóns segir slík skilaboð afskaplega sár. „Ef þú ert miðill eða sjáandi og telur þig búa yfir mikilvægum upplýsingum um Jón sem var miðlað til þín frá anda eða einhverjum sem er ekki lengur á meðal vor, eða þú fékkst hugljómun eða sýn um, þá biðjum við þig vinsamlegast að hafa EKKI samband eða biðja aðra um að hafa samband. Við virðum trú ykkar og lífsstíl, en ef þið væruð í okkar sporum mynduð þið skilja hversu óskaplega sárt það er að fá slík skilaboð á nokkra daga fresti frá fólki sem segir að ástkær bróðir okkar sé fastur undir grjóthnullungi í námu eða þaðan af verra.“
Fjölskylda Jóns segir að skilaboð sem þessi séu mjög særandi. „Ef þú ert miðill eða sjáandi og telur þig búa yfir mikilvægum upplýsingum um Jón sem þú fréttir frá anda eða þú fékkst hugljómun um, þá biðjum við þig í einlægni að hafa EKKI samband eða biðja aðra um að hafa samband við okkur fyrir þína hönd. Við virðum trú ykkar og lífskoðun, en þið verðið að skilja hversu særandi það er að fá slík skilaboð á nokkurra daga fresti frá fólki sem fullyrðir að ástkær bróðir okkar sé fastur undir hnullung í námu,“ segir í yfirlýsingunni.
Að lokum segir fjölskylda Jóns að ef hún hyggist leita hjálpar hjá spámiðlum eða sjáendum mun hún gera það af sjálfsdáðum. Þá er fólk sem gæti hafa átt í raunverulegum samskiptum við Jón Þröst eða býr yfir haldbærum upplýsingum í tengslum við hvarf hans beðið um að hafa samband og deila þeim upplýsingum með fjölskyldunni og lögreglunni á Írlandi.