Í öðrum þætti af Súrefni – þætti um umhverfismál er skoðuð heimajarðvegsgerð. Afgangar á heimilinu nýtast vel í það og fleiri en eina aðferð er hægt að nota til þess að gera þetta heima þótt plássið sé ekki mikið, t.d. má nota mjög vinnusama orma til moltunnar. En það var árið 2016 sem Reykjavikurborga setti fram Lífræna – aðgerðaráætlun um meðhöndlun úrgangs í Reykjavík.
Þátturinn er í umsjón Lindu Blöndal.
Hjörtur Þorbergsson forstöðumaður Grasagarðsins tekur á móti okkur á skrifstofu garðsins þar sem starfsfólkið stundar heima-jarðvegsgerð á kaffistofunni. Reykjavíkurborg hvetur íbúa til þess að búa til verðmæti úr úrgangi heimilsins með moltugerð – alla vega þangað til lífrænn úrgangur verður tekinn inn í nýja jarðgerðarstöð Sorpu í Álfsnesi á næsta ári.
Hjörtur Laugardalnum sýndi okkur tvenns konar moltugerð sem má gera innan heimilisins en ein aðferðin felst í að láta orma borða afganga og búa til jarðveg sem er sneisafullur af næringu. Hjörtur segir þó að með þeirri aðferð sé þó ekki hægt að nota allt og ekki heldur maíspoka eins og Bónus hefur tekið í gagnið nýlega, ormarnir vilja ekki sjá þannig lagað. Svavar Skúla Jónsson garðyrkjufræðing sýnir okkur svo safnhauginn úti í garðinum og hvernig þannig jarðvegsgerð getur orðið.