Ég á tvo vini sem eru afbragðs prúttarar. Borga aldrei uppsett verð. Ég er eiginlega viss um að þeir fái afslátt hjá skattinum. Oft bregður mér að sjá hversu háa afslætti er hægt að kreista út. Segir kannski eitthvað um álagninguna í þessu landi fákeppninnar.
Sjálfur er ég heldur lélegur í þessu og borga oftast uppsett verð. Mér leiðist að þurfa alltaf að gráta út afslátt. Leiðist að þurfa að bjóða út tryggingar heimilisins árlega til að koma í veg fyrir að þær rjúki upp í verði. Ég skil ekki reikningana frá símafyrirtækinu eða hvers vegna þarf að senda mér þrjá reikninga á mánuði til að dekka þjónustuna. Hvað þá orkureikninginn sem alltaf er að klofna upp í fleiri kvíslar og hækkar eins og enginn sé morgundagurinn.
Það sem ég skil þó síst er bankinn minn. Verðskrár þriggja stærstu bankanna telja 8 síður og það í letri sem krefst lesgleraugna fyrir miðaldra mann. Virðast samt vera sama skjalið ljósritað á bréfsefni hvers banka um sig. Ég verð að viðurkenna að ég dáist að hugmyndaauðgi bankanna yfir því sem rukkað er fyrir. Ef við tökum lán borgum við bankanum þóknun fyrir að meta hversu mikið hann vilji lána okkur, auk hinna himinháu vaxta. Svo greiðum við lántökugjald, gjald fyrir skjalagerð, og svo auðvitað gjald fyrir að fá að greiða afborganir, jafnvel þó þær séu skuldfærðar og allur pappír afþakkaður. Ef við viljum greiða hraðar inn á lánið kemur þóknun á það.
Nánar á
http://www.visir.is/g/2019190229969