Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins mæta á Þjóðbraut í kvöld. Þingmennirnar tókust harkalega á frumvarp Pírata um að draga til baka launahækkun Alþingismanna og annarra embættismanna. Þjóðbraut er frumsýnd kl.21 í kvöld, fimmtudag.
Frumvarp sem Jón þór er fyrsti flutningsmaður að er til umræðu og tókust Jón Þór og Óli Björn harkalega á um það. Málið fékkst ekki á dagskrá Alþingis í morgun eins og Píratar báðu um, með stuttum fyrirvara, en það snýst um kauphækkun Alþingismanna og annarra embættismanna samkvæmt úrskurði kjararáðs á kjördag í haust. Frumvarpið, sem hefur nú þegar verið dreift, byggir á gagnrýni á kjararáð sem Jón Þór segir ekki hafa farið að lögum við hækkun launa þingmanna og annarra. Hún hafi ekki miðast við þar tilgerð viðmið og stefni efnahagsstöðugleika í hættu.
Óli Björn sagði málið bera þess augljós merki að vera „frekar ómerkilegur pólitískur leikur\". Hann benti á að laun þingmanna hefðu verið fryst eftir hrun og dregist mikið aftur úr í kjaraþróun, þetta væri leiðrétting á því og að Píratar hefðu haft langan tíma til að koma með málið fram fyrr en núna.
„Ertu að segja að kjaradómur hafi brotið lög?” spyr Óli Björn sem Jón Þór svarar játandi og segir fleiri, til dæmis aðila vinnumarkaðarins taka undir með sér í því.
„Mér finnst mjög alvarlegt ef Jón Þór fullyrðir að kjaradómur hafi brotið lög” sagði Óli Björn og sagðist skilja Jón Þór sem svo að hann vilji að þingmenn ákveði laun sín sjálfir þótt Jón Þór neiti því og vilji einungis senda kjaradóm aftur til baka með sína útreikninga enda hafi verið sýnt fram á að forsendur þeirra séu rangir.
Óvíst er hvenær frumvarpið verður tekið á dagskrá.
Jón Þór segir tímapressuna mikla því stutt væri í að kjarasamningar 70 prósenta launafólks yrðu í uppnámi eða um hundrað kjarasamningar.
Forysta ASÍ og SA ræðu nú um hvort að forsendubrestur hafi orðið gagnvart síðustu kjarasamningum. Verði sú niðurstaðan getur mikið uppnám orðið á vinnumarkaði strax um næstu mánaðarmót.