Ölgerðin kolefnisjafnar alla sína starfsemi - munu planta 10.000 trjám árið 2019

Ölgerðin Egill Skallagrímsson kolefnisjafnar nú allt sitt kolefnisspori og hefur undirritað samninga þess efnis við Votlendissjóð og Kolvið. Í tilkynningu frá Ölgerðinni kemur fram að fyrirtækið hafi minnkað orkunotkun sína við alla framleiðslu, takmarkað umbúðanotkun, aukið sorpflokkun og gripið til margvíslegra aðgerða til að gera starfsemi fyrirtækisins umhverfisvænni en áður. Stefna Ölgerðarinnar um lágmörkun umhverfisáhrifa leiddi til þess að á síðasta ári minnkaði kolefnisspor fyrirtækisins um 34%. Hluti af umhverfisstefnu Ölgerðarinnar er að kolefnisjafna með öllu starfsemi fyrirtækisins hér á landi. 

Með aðgerðum um endurheimt votlendis og gróðursetningu trjáa ætlar Ölgerðin að jafna allan þann útblástur sem verður við starfsemi fyrirtækisins. Kolefnisjöfnunin felst í því annars vegar að Votlendissjóður gerir samninga við landeigendur um að endurheimta votlendi á þeirra jörðum og Ölgerðin greiðir þann framkvæmdakostnað sem af því hlýst. Landeigendur skuldbinda sig á móti að raska ekki hinu endurheimta landi í að minnsta kosti 10 ár. Hins vegar felst kolefnisjöfnunin í því að Kolviður gróðursetur 9720 tré árið 2019 fyrir Ölgerðina við Úlfljótsvatn, Skálholt og að öllum líkindum á Mosfellsheiði síðar meir. Með þessum aðgerðum mun rekstur Ölgerðarinnar ekki skilja eftir sig nein kolefnisfótspor.