Ólafur reimar segir af sér: „ég tel illa að mér vegið“

Ólafur Reimar Gunnarssonar sagði af sér í kvöld  stjórnarmennsku og stjórnarformennsku í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Jafnframt sagði hann sig frá trúnaðarstörfum fyrir VR.  

Í kvöld tók full­trúaráð fé­lags­ins í LV ákvörðun um að aft­ur­kalla umboð stjórn­ar­mann­anna fjög­urra sem VR skip­ar í stjórn sjóðsins og skipa nýja í þeirra stað. Ástæða þess að VR kaus að grípa til þess­ara aðgerða sú að þann 24. maí síðastliðinn hækkaði Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna breyti­lega vexti verðtryggðra sjóðfé­lagalána úr 2,06% upp í 2,26%, en tveim­ur dög­um fyrr hafði Seðlabanki Íslands lækkað stýri vexti um hálft pró­sentu­stig.

Í yfirlýsingu til stjórnar VR segir Ólafur:

Ég undirritaður Ólafur Reimar Gunnarsson stjórnarmaður í VR og nú fráfarandi stjórnarformaður í Lífeyrissjóði verzlunarmanna (LV) tilnefndur af VR segi hér með af mér sem stjórnarmaður í VR og um leið segi ég mig frá öllum þeim trúnaðarstörfum sem ég hef gegnt fyrir félagið undanfarin ár.

Ég hef í störfum mínum fyrir VR lagt mig fram um að sinna þeim af kostgæfni og alúð og lagt mig fram um að starfa fyrir alla félagsmenn og alla sjóðfélaga í LV.

Ég hef meðal annars að fullu tekið þátt í því mikla verkefni LV að draga verulega úr fjármagnskostnaði heimilanna á undanförnum árum með því að sjóðurinn hefur boðið sjóðfélögum lán á samkeppnishæfum kjörum. Þar hefur sjóðurinn haft forgöngu um lækkun vaxta sem síðustu misserin hefur einkum komið fram á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Eins og auðveldlega má sjá á vef sjóðsins báru þessi lán 3,99% vexti í upphafi árs 2015, þeir hafa jafnt og þétt lækkað og eru nú 2,06%. Þetta er og hefur verið afar mikilvæg kjarabót fyrir félagsmenn VR og sjóðfélaga í LV.

Á sama tíma hefur stjórn LV gætt þeirrar afdráttarlausu lagalegu og siðferðislegu skyldu sinnar að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga.

Á liðnum vetri var orðið ljóst, að það viðmið sem stjórn sjóðsins hafði á árum áður ákveðið að binda vexti þessara lána við var ekki lengur nothæft og varð að finna nýtt sem uppfyllti þau skilyrði að vera almennt, endurspegla vaxtaumhverfi á markaði hér og vera tengt við áreiðanleg  viðmið á markaði þannig að ekki væri hætta á að vaxtaákvarðanir tækju mið af annarlegum sjónarmiðum eða hagsmunum af neinu tagi. Þessi breyting hafði í för með sér að breytilegu vextirnir hækka sem nemur 0,2 prósentustigum og eru eftir sem áður með lægstu vöxtum á íslenskum lánamarkaði. Sé allt með talið, líka skilyrði sem lántakar þurfa að uppfylla, hika ég ekki við að fullyrða að eftir þessa vaxtabreytingu eru verðtryggð lán LV með breytilegum vöxtum eftir sem áður þau hagstæðustu sem almenningur á Íslandi á kost á að taka.

Í öllu þessu hefur stjórn LV unnið af fullum heilindum og með hag allra sjóðfélaga að leiðarljósi.

Ég tel því illa að mér og öðrum stjórnarmönnum sjóðsins vegið að væna okkur um óheilindi og bregðast við með svo harkalegum og ómálefnalegum hætti sem formaður VR og stjórn félagsins hafa gert, og nú síðast fulltrúaráð félagsins í LV. Vinnubrögð formanns og meirihluta stjórnar hafa verið forkastanleg og get ég ekki hugsað mér að starfa lengur í þessum félagsskap og segi því hér með skilið við hann.“