Umræðunni um Klaustursmálið er hvergi nærri lokið. Þegar miðað er við samfélagsmiðla virðist sem að Bára Halldórsdóttir, uppljóstrarinn sem tók upp samtal sexmenninganna, njóti nokkurs stuðnings almennings fyrir sinn þátt í málinu. Hinsvegar eru þeir sem líta málið öðrum augum. Einn þeirra er Ólafur Hannesson, fyrrverandi varabæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi, sem ritar í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni „ Húrrandi klikkuð umræða.“
Ólafur segir:
„Það verður nú að segjast að það hefur verið hjákátlegt að fylgjast með umræðunni um Klaustursþingmennina svokölluðu. Hræsnin hreinlega lekur af fólki þegar það ræðst gegn þingmönnunum og heimtar höfuð þeirra. Þingmennirnir eru í ómögulegri stöðu, þeir geta ekki beðist afsökunar rétt, ekki hjálpar ef þeir taka launalaust leyfi til íhugunar (kostar það þó Gunnar og Bergþór fleiri hundruð þúsund). Virðist krafan vera sú að þau missi vinnuna, öll sem eitt, fyrir að talað var með ljótum hætti í samsæti þeirra, jafnvel burtséð frá því hverjir létu orðin falla. Ef fólk ætti að missa vinnuna fyrir að tala ógætilega eða verða vitni að slíku þá væri eflaust um fjórðungur landsmanna atvinnulaus hverju sinni. Fólk keppist við að lýsa yfir hneykslun sinni og heilagleika vegna þess að enginn eigi að tala svona. Sannleikurinn er hinsvegar sá að steinarnir fljúga úr glerhúsum landsmanna. Margir geta ekki einu sinni setið á sér í orðbragði á sama tíma og þeir lýsa frati á þessa sex þingmenn sem sátu Klaustursfundinn fræga.“
Nánar á