Stúdentaráð Háskóla Íslands hélt Októberfest um helgina. Hátíðin er með stærri útihátíðum á höfuðborgarsvæðinu en talið er að um 3.000 manns hafi sótt hátíðina þar sem mikið af okkar helsta tónlistarfólki spilaði fyrir dansi.
Snædís Snorradóttir kíkti við á opnunarkvöldinu og heyrði þar í Guðnýju Ljósbrá, skipuleggjanda hátíðarinnar.
Meira um Októberfest í þættinum 21 í kvöld kl 21:00 á Hringbraut.