Nokkur hundruð manns sóttu fundi stjórnmálaflokka um helgina. Stjórnmálaáhugi almennra leikmanna virðist mikill. Velferðar- og heilbrigðismál virðast af öllu að dæma verða stærstu kosningamálin.
Flokksráðsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn í Laugardalshöll á laugardag. Mikið var undirbúið fyrir fjölmiðla svo þeir gætu sent út ræðu formannsins þannig að hún næði til sem flestra kjósenda.
Sjálfstæðisflokkurinn segir í ályktun fundarins að nýju greiðsluþátttökukerfi hafi verið komið á, þar sem sett hefur verið þak á kostnað einstaklinga vegna heilbrigðisþjónustu og börn eigi kost á gjaldfrjálsri þjónustu. Þá segir líka: “Við teljum mikilvægt að nýta áfram möguleika á fjölbreyttu rekstrarformi í heilbrigðisþjónustu”.
Segja má að stjórnmálaflokkur Viðreisnar hafi orðið til um helgina með formlegum hætti. Landsþing flokksins fór fram í Hörpu og um 300 flokksfélagar mættu til að móta stefnu flokksins fyrir kosningar. Viðreisn ákvað þetta um helgina: “Greiðsluþátttaka verði byggð á sanngirni og miðist við hverja fjölskyldu. Útfærslan taki mið af greiðslugetu allra samfélagshópa”.
Fjölmennt var hjá Samfylkingunni á flokksstjórnarfundi um helgina. “Kjósum besta heilbrigðiskerfi í heimi”, var stærsta áskorunin og aðal loforðið þar á bæ. “Við eigum öll að geta gengið að öflugri opinberri heilbrigðisþjónustu um allt land. Ókeypis. Alltaf”, segir í ályktun frá fundinum.
Þjóðbraut fjallar á morgun, mánudag nánar um stóru fundi þessara þriggja flokka.