Oft kraumar undir á vinnustöðum og í hita leiksins eru mannleg samskipti ekki eins og best verður á kosið. Ágústa Björg Bjarnadóttir, mannauðsstjóri Sjóvá, er gestur Jóns G. í kvöld. Sjóvá er eitt 15 fyrirtækja sem fengu VR-verðlaunin á dögunum fyrir ánægðustu starfsmennina en um er að ræða þrjá flokka fyrirtækja; stór, meðalstór og lítil.
Þess má geta að stærsta stjórnunarfélag á Íslandi, Stjórnvísi, útnefndi Ágústu árið 2015 sem millistjórnanda ársins fyrir störf hennar sem mannauðsstjóri. Þetta er stórfróðlegt viðtal við Ágústu um mannauðsmál, hvað geri starfsmenn ánægða, mikilvægi starfsmannaviðtala og auðvitað samhengið á milli ánægðra starfsmanna og ánægðra viðskiptavina.
Spennandi þáttur kl. 20:30 í kvöld, miðvikudagskvöldið 22. maí, á Hringbraut.
Viðtalið við Ágústu má nálgast hér: