Í gær greindist einstaklingur í Reykjavík með mislinga og er það sjötta staðfesta tilfellið frá því að mislingafaraldurinn hófst hér á landi um miðjan síðasta mánuð. Eitt tilfelli til viðbótar flokkast sem vafatilfelli, en í því var einstaklingur með jákvætt próf eftir mislingabólusetningu sem greinir ekki á milli raunverulegra mislinga og áhrifa af bólusetningunni.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sóttvarnalækni.
Nýjasta tilfellið er 23 ára gamall einstaklingur með sögu um bólusetningu við 12 ára aldur. Hann hafði nýlega verið í umgengni við smitandi einstakling. Um 10 dögum síðar fékk hann vægan hita í 1–2 daga með mislingalíkum útbrotum. Niðurstaða rannsóknar þann 19. mars var vægt jákvæð fyrir mislingum. Hinn veiki verður í einangrun í 4 daga eftir að útbrot byrjuðu.
Þegar um er að ræða væga mislinga (e. modified measles) hjá bólusettum einstaklingum er engin hætta á alvarlegum veikindum og smithætta til annarra lítil. Ekki er þörf á sóttkví annarra sem umgengist hafa þann veika af þessu tilefni.
Í tilkynningunni segir að undanfarið hafi borið á því að bólusettir einstaklingar hafi fengið útbrot skömmu eftir bólusetninguna og hafi greinst jákvæðir í rannsóknum fyrir mislingum. Þessi einkenni eru sögð eðlileg eftir bólusetninguna og valda ekki smiti til annarra. Í flestum slíkum tilfellum sé því ekki ástæða til sýnatöku en sýnataka sé þó alltaf háð mati læknis.