Í þættinum Markaðstorgið veltir Pétur Einarsson upp nýjum hliðum á viðskiptum Seðlabanka Íslands við nokkra vogunarsjóði þ.á.m. Taconic Capital og Attestor Capital. Hörður Ægisson blaðamaður vakti fyrst athygli á þessu máli í Fréttablaðinu. Um er að ræða hlutabréfasölu að verðmæti 19 milljarða króna í Kaupþing sem Seðlabankinn seldi í nóvember en eftir að var tilkynnt um samkomulag kaupþings við Deutsche Bank hækkuðu bréfin um 4-5 milljarða.
Þetta eru meðal stærstu verðbréfaviðskipta í sögu Íslands. Viðskiptin áttu sér stað í nóvember en nú liggur fyrir að gengið var frá samkomulagi Kaupþings og Deutsche Bank í október. Ýmsar spurningar vakna:
Hvernig getur það viðgengist að viðskipti af þessu tagi séu á gráum markaði- nánast í skjóli myrkurs? Öll slík viðskipti ættu að fara í gegnum Kauphöll Íslands. Síðan vaknar upp sú spurning hvort ekki sé um að ræða innherjaviðskipti þ.e. að kaupendur bréfana höfðu vitneskju um þetta samkomulag sem var þá ekki búið að opinbera. En er þetta nýtt Borgunarmál? Sennilega ekki. Íslendingar virðast bara hafa áhyggjur ef aðrir Íslendingar græða en ef það er vogunarsjóður úti í heimi jafnvel á kostnað okkar þá skiptir það engu máli!