Valgerður Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum skólameistari á Laugum, hefur enn umráð af einbýlishúsi sem hún leigir hjá Laugaskóla þótt tvö og hálft ár séu liðin síðan hún fór á þing og hætti sem skólameistari.
Frá þessu greinir Stundin í dag.
Fram kemur í frétt Stundarinnar að leigan á húsinu sé mjög niðurgreidd. Húsnæðisekla sé á sama tíma á staðnum og svo mikil að settur skólameistari neyðist til að búa á heimavist.
Þá kemur fram að sonur þingmannsins sjái um útleigu á húsi í eigu Valgerðar til ferðamanna undir merkjum Húsavík Guesthouse. Valgerður sé einnig með heimili í Reykjavík og fái dreifbýlisstyrk sem nemi 130.000 krónum á mánuði til að standa straum af því auk álags, alls 182.000 krónur.
Stundin segir að Valgerður hafi ekki svarað fyrirspurn blaðsins um þessi mál.
Uppfært kl. 13.12: Í upprunalegri gerð frétt víxlaðist hvort húsið Valgerður skólameistari leigir ferðamönnum og hefur fyrirsögn verið breytt til samræmis við það. Fyrirsögn Stundarinnar er: \"Leigir ódýrt af ríkinu og rekur gistiheimili í eigin einbýlishúsi\".