Nýsköpunarmiðstöð Íslands lék lykilhlutverk í stórverkefni sem var lagning ný slitlags á Ölfusárbrú.
Gamla steypan var fræst af gólfinu og svo steypt aftur yfir með sérstakri hástyrkleika steypu sem var hönnuð af Rb við Nýsköpunarmiðstöð Íslanda í samvinnu við Vegagerðina.
Það sem er sérstakt við steinsteypuna er að hún nær sama styrk eftir 12 tíma og venjuleg steypa eftir fjórar vikurvið staðlaðar aðstæður. Eftir fjórar vikur er steypan um það bil fjórum sinni sterkari en venjuleg steinsteypa og þrýstiþol er 100 MPa (þolir 100 tonn á 10 sentímetra tening).
Þetta kemur fram á vef Nýsköpunarmiðstöðvar.