Nýr fréttastjóri ráðinn hjá dv

Kristinn Haukur Guðnason er nýr fréttastjóri DV.

Í fréttatilkynningu DV segir frá Kristni:

Kristinn hóf störf sem blaðamaður hjá DV í júní árið 2017. Áður hafði hann meðal annars starfað fyrir Kjarnann frá árinu 2013. Kristinn mun hafa umsjón með helgarblaðinu ásamt Birni Þorfinnssyni. Kristinn er fæddur í Uppsölum í Svíþjóð árið 1980. Hann er með MA-gráðu í sagnfræði og hefur numið við Háskóla Íslands og Edinborgarháskóla.

Kristinn segir: „Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt. Hér er samrýmdur, hugmyndaríkur og öflugur hópur starfsfólks sem hefur gert það að verkum að miðillinn er á mikilli uppleið. Það er spennandi að fá að taka þátt í að móta DV á komandi misserum enda erum við sífellt að auka fjölbreytni efnisins fyrir lesendur. Það er ákaflega gefandi að finna fyrir þessum mikla meðbyr og við ætlum að halda sókninni áfram\"