Nýr framkvæmdastjóri tekur við lf

Landsamband fiskeldisstöðva (LF) hefur ráðið Kristján  Þ. Davíðsson sem framkvæmdastjóra sambandsins. Viðskiptablaðið segir frá þessu. Kristján er sjávarútvegsfræðingur að mennt frá Sjávarútvegsháskóla Noregs í Tromsö. Kristján hefur áratuga reynslu af störfum í sjávarútvegi og tengdum greinum hér á landi og í Noregi og víðar. Hann hefur unnið við útflutning sjávarafurða og tækja og búnaðar fyrir útgerðir. Þá hefur hann unnið við fjármál og ráðgjöf. Kristján er kjörræðismaður Brasilíu á Íslandi.