Inniskórnir eru skildir eftir heima í Ferðalaginu á Hringbraut í kvöld en þar kynna þáttastjórnendurnir Linda Blöndal og Sigmundur Ernir sér margt það helsta sem er að gerast í ferðaþjónustunni hér á landi.
Í byrjun þáttarins verður farið að Deildartunguhver í Reykholtsdal þar sem verið er að leggja lokahönd á glæsilegan baðstað við vatnsmesta hver Evrópu, en aðstaðan þar verður öll hin glæsilegasta eins og glöggt má sjá í þættinum í kvöld.
Þá verður rætt við Ársæl Baldursson, framkvæmdastjóra Computer Vision um gjaldtöku og aðgangsstýringu að vinsælum ferðamannastöðum en hún hefur einmitt verið stór partur af þeim verkefnum sem ferðaþjónustan er að glíma við. Hvað er nú þegar að gerast og með hvaða aðferðum er verið að taka gjald?
Eins verður tekið hús á Ólafi Kjartani Sigurðarsyni, óperusöngvara sem hefur ferðast meira en aðrir Íslendingar starfs síns vegna, en hann er nú staddur heima á íslandi við uppsetningu á Toscu eftir Puccini.
Loks verður rætt við fólk á förnum vegi um ferðalög þess á sumrinu sem nú er að kveðja, en þar kemur vel fram að ferðahugurinn er ekkert endalega allra; sumir vilja bara vera heima að slappa af.
Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvvöld.