Ný lög um kennara samþykkt á alþingi

Ný lög um kennara voru samþykkt á Alþingi í gær en með þeim er lögfestur hæfnirammi um menntun og hæfni kennara og skólastjórnenda sem lýsir betur þeirri hæfni sem kennarar þurfa að búa yfir til samræmis við þá ábyrgð sem felst í starfi þeirra.

„Við viljum draga fram mikilvægi kennarastarfsins og stuðla að því að þeir sem leggja stund á kennslu- og uppeldisstörf í leik-, grunn-, og framhaldsskólum hafi menntun í samræmi við störf sín og ábyrgð. Þessi nýju lög eru mikilvægt framfaraskref í þá átt og að mínu mati munu þau auka til muna tækifæri kennara til þess að þróa sig í starfi, og stuðla að aukinni samfellu og samstarfi skólastiga,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.  

Aukin áhersla er í nýju lögunum á starfsþróun kennara og gæði skólastarfs til samræmis við markmið stjórnvalda um að efla starfsumhverfi kennara og stuðla að faglegu sjálfstæði þeirra líkt og kveðið er á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Í stað leyfisbréfa á þrjú skólastig verður framvegis gefið út eitt leyfis­bréf til kennara þvert á skólastig þar sem metin er bæði almenn og sérhæfð hæfni hvers kennara. Ábyrgð skólastjórnenda við mat á hæfni umsækjenda um störf mun því aukast. Þá færist útgáfa leyfisbréfa kennara og veiting undanþága vegna ráðningar leiðbeinenda til Menntamálastofnunar.

Nýju lögin munu hafa áhrif á uppbyggingu og inntak kennaramenntunar til framtíðar. Komið verður á fót kennararáði sem fjalla mun um þróun hæfniramma fyrir menntun kennara og skólastjórnenda. Hlutverk ráðsins verður m.a. að leiðbeina um þau hæfniviðmið sem horfa ber til við skipulag kennaramenntunar, starfsþróunar og ráðninga. Ráðgert er að nemendur sem innritast í kennaranám frá og með skólaárinu 2021–2022 útskrifist af námsbrautum skipulögðum samkvæmt nýjum lögum. 

Samkvæmt bráðabirgðaákvæði mun mennta- og menningarmálaráðherra skipa samráðshóp til að fjalla umframkvæmd og innleiðingu nýju laganna en í honum verða fulltrúar leik-, grunn- og framhaldsskóla, Kennarasambands Íslands, skólastjórnenda og menntavísindasviðs Háskóla Íslands og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Þá hefur ráðherra ákveðið að bjóða fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga sæti í samráðshópnum.