Bergmál, nýjasta kvikmynd leikstjórans og handritshöfundarins Rúnars Rúnarssonar, verður heimsfrumsýnd á hinni virtu Locarno kvikmyndahátíð í Sviss á sunnudaginn. Locarno hátíðin er ein fárra svokallaðra „A“ kvikmyndahátíða og því er um mikinn heiður að ræða. Bergmál mun keppa um Gyllta hlébarðann, aðalverðlaun hátíðarinnar.
Myndinni er lýst sem ljóðrænum og fallegum samtímaspegli um íslenskt samfélag, sem byrjar á aðventunni í aðdraganda jóla og endar á nýársdag.
„Við notum jólin til að styrkja samfélagið,“ segir Rúnar í samtali við danska kvikmyndatímaritið Ekko á dögunum.
„Jólin eru sá árstími þar sem maður getur litið í spegil og fengið tækifæri á nýrri byrjun, hreinum skjöld. Alveg burtséð frá því hvort maður sé trúaður eður ei speglast hið góða í okkur. Jólin eru tími sem flestir elska en getur einnig verið mjög erfiður fyrir marga.“
Hann segir Bergmál vera „arthouse“ jólamynd. „Það þarf líka að gera þær,“ segir Rúnar og hlær.
Myndin verður frumsýnd hér á landi fyrir jól.
Sjáðu stikluna fyrir Bergmál hér:
Tilnefndur til Óskarsverðlauna
Rúnar er margverðlaunaður kvikmyndagerðarmaður og var til að mynda tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir stuttmynd sína, Síðasti bærinn, árið 2006. Önnur stuttmynd hans, Smáfuglar, sem kom út árið 2008, ferðaðist afar víða og vann til hátt í 100 verðlauna á erlendum kvikmyndahátíðum. Leiknar kvikmyndir Rúnars í fullri lengd eru Eldfjall, sem kom út árið 2011, og Þrestir, sem kom út árið 2015.
Myndir Rúnars hafa unnið til verðlauna á mörgum af stærstu kvikmyndahátíðum heims, þeirra á meðal San Sebastián kvikmyndahátíðinni á Spáni og kvikmyndahátíðinni í Varsjá. Auk þess hafa myndir hans meðal annars verið sýndar á Cannes kvikmyndahátíðinni, Tallinn Black Nights kvikmyndahátíðinni í Eistlandi og kvikmyndahátíðinni í Toronto.