Norrænir fjármálaráðherrar

Bendikt Jóhannesson fjármála- og efnhagsráðherra tók þátt í fundi norrænna fjármálaráðherra í Osló hinn 24.mars sl. Á fundinum var rætt um áskoranir framundan og samstarf norrænna ríkja sín á milli og innan Evrópu og um breytingar og óvissu í tengslum við Brexit áform Breta og þá öldu verndarhyggju í viðskiptum sem nú rís. Þátttöku Noregs sem gestalands á formennskuári Þýskalands í G20 hópnum bar á góma. Þar þrýstir Noregur á áframhaldandi frjáls viðskipti og frjálslyndar hugsjónir.

Í innleggi sínu kynnti Bendikt Jóhannesson þær breytingar sem orðið hafa á íslenska hagkerfinu undnafarin misseri með áherslu á afnám fjármagnshafta og uppgjör slitabúa. Benedikt fagnaði áfrahaldandi norrænu samstarfi í viðskiptum og skatteftirliti á vettvangi Evrópu og alþjóðlega.