Stórfréttir frá Norður-Kóreu í kvöld: Kim Jong-un leiðtogi N-Kóreu hefur tilkynnt að kjarnorkuvopnatilraunum landsins og tilraunum með langdræg flugskeyti hafi verið hætt og kjarnorkustöð í norðurhluta landsins verði lokað.
Kim sagði í yfirlýsingu að í ljósi þess að „staða kjarnorkuvopna sé fullgerð“ sé ekki lengur þörf á tilraunum.
Stjórnarfulltrúar í Washington DC segjast bíða átekta með formleg svör við sögulegri yfirlýsingu leiðtoga Norður-Kóreu en hún er sögð jákvætt innlegg fyrir leiðtogafund milli Kóreuríkjanna tveggja sem fyrirhugaður er í næstu viku og viðræður Kim Jong-uns og Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem líkelga verða í byrjun júní.
„Stór áfangi!“ sagði Trump á Twitter. Hann sagði að þetta væru mjög góðar fréttir fyir Norður-Kóreu og heiminn og sagðist hlakka til leiðtogafundarins.
Moon Jae-in forseti Suður Kóreu sagði í gær að Norður Kórea setti ekki lengur það skilyrði að Bandaríkin hyrfu með herafla sinn af Kóreuskaga.
CNN hefur eftir heimildarmanni í Norður-Kóreu að Kim Jong-un hefði ákveðið að hefja nýjan kafla í sögu landsins og honum væri alvara í að feta braut kjarnorkuafvopnununar. Nú ætlaði hann að leggja áherslu á efnahagslega uppbyggingu og opnun landsins.
North Korea has agreed to suspend all Nuclear Tests and close up a major test site. This is very good news for North Korea and the World - big progress! Look forward to our Summit.
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) April 20, 2018