Samkvæmt nýjustu tölum voru 7.723 búnir að greiða atkvæði á kjörstað í Reykjavík klukkan tólf. Mbl.is hefur tekið saman tölurnar en um 600 fleiri hafa kosið á þessum tíma en á sama tíma 2014.
90.111 manns eru alls á kjörskrá.
Í Kópavogi er kjörsókn svipuð og síðast eða um 7 prósent. Klukkan tólf höfðu 1.878 greitt atkvæði í Kópavogi, á kjörskrá eru 25.789.
Í Hafnarfirði höfðu 1.443 kjósendur greitt atkvæði klukkan tólf. Þar eru 20.786 á kjörskrá og kjörsókn því um 7 prósent.
Í Mosfellsbæ höfðu 728 greitt atkvæði klukkan 12, kjörsókn er því rúm 11 prósent sem er nokkuð hærra en í síðustu sveitarstjórnarkosningum.
Í Reykjanesbæ var kjörsókn í hádeginu 5,6 prósent.
Á Akureyri hafði mjög svipað hlutfall kosið í hádeginu og síðast eða tíu present.
Fylgjast má með kjörsókn á hverjum klukkutíma hér á vef Reykjavíkurborgar og sjá samanburð á milli kosninga. Tölurnar um kjörsókn eru uppfærðar á klukkutíma fresti.