Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir fyrstu sex mánuði ársins var afgreiddur í borgarráði í dag. Rekstur A hluta er jákvæður um tæplega fjóra milljarða. Borgarstjóri segir niðurstöðuna til marks um sterkan resktur borgarsjóðs.
Rekstrarniðurstaða A-hluta borgarinnar var jákvæð um 3.7 milljarða króna en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 1.8 milljarða á tímabilinu. Niðurstaðan er því tæplega tveimur milljörðum króna betri en gert var ráð fyrir að því er segir í tilkynningu frá borginni.
„Betri rekstrarniðurstaða skýrist einkum af hærri tekjum af sölu byggingarréttar, sem var 2.113 mkr umfram áætlun. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 4.564 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.528 mkr eða 2.036 mkr umfram áætlun. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A- og B-hluta, var jákvæð um 9.146 mkr en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 9.261 mkr.“
Nánar á
http://www.visir.is/g/2018180839912/niu-milljarda-afgangur-af-rekstri-borgarinnar