Hægja þarf á neyslu Íslendinga sem er gríðarleg. Kallað er eftir algerum viðsnúningi til að loftslagsmálin fari ekki endanlega úr böndunum. Rómarklúbburinn sendir frá sér neyðaraðgerðaráætlun og virtur prófessor í Bandaríkjunum sakar Trump forseta um glæpi gegn mannkyni.
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við jarðvísindadeild Háskóla Íslands og sérfræðingur í sjálfbærnismálum hefur um árabil bent á alvarleika loftslagsbreytinga af mannavöldum. Hún segir að áður fyrr hafi fólk yppt öxlum þegar minnst var á loftslagsbreytingar og málefnið hafi ekki verið ofarlega á baugi hjá ráðafólki. Það hafi breyst á allra síðustu árum og nú geri flest sér grein fyrir stöðunni og að aðgerða er þörf.
Kristín Vala ræðir við Margréti Marteinsdóttur í þættinum 21 í kvöld.
Þrátt fyrir það eru Íslendingar með stærsta vistspor í heimi. Kristín segir að ástæðan sé sú að hér sé meirihluti landsmanna í millistétt og neysla hennar sé afar mikil.
Aðspurð hvers vegna Íslendingar taki ekki hraðar við sér og breyti lífsstíl sínum segir Kristín að við virðumst vera háð ákveðnum lífsstíl og að breytingar á honum reynist mörgum erfiðar. Viðhorfið sé einnig alltof oft að þetta sé ekki okkar vandamál, að fólk líti ekki í eigin barm. Kristín segir að alger viðsnúningur sé óumflýjanlegur og að á næstu tveimur árum þurfi mannkynið að draga úr neyslu með afgerandi hætti því fyrir árið 2030 þurfi að minnka útblástur um 50%. Það sé gerlegt en afar flókið viðfangsefni þvi að hagkerfi heimsins sé byggt upp á brennslu olíu.
Kristín Vala sagði árið 2015 að Parísarfundurinn sem haldinn var í desember það ár væri mikilvægasti fundur mannkynssögunnar og að ef ekki næðist fullnægjandi samkomulag þar myndum við missa loftslagsmálin út úr höndunum. Nú þremur árum síðar segir Kristín að þó að það standi tæpt sé hún enn bjartsýn. Kjör Trumps ári eftir Parísarfundinn var áfall og bakslag fyrir þá vinnu sem átti að fara í.
Visíndafólk um allan heim er uggandi yfir afneitun Trumps á niðurstöðum vísindafólks víða um heim sem rannsakað hefur loftslagsmálin árum og jafnvel áratugum saman. Einn þeirra skrifaði grein á vefsíðu CNN um helgina þar sem hann sakar Trump um glæpi gegn mannkyni. Sá heitir Jeffrey Sachs, prófessor og deildarforseti við Columbia háskóla. Sachs er afar virtur fræðimaður í Bandaríkjunum og víðar og því vakti grein hans mikla athygli.
Sachs skrifar þar að draga eigi Trump og aðra í hans stjórn til ábyrgðar fyrir glæpi gegn mannkyni. Þeir séu höfundar og verndarar stefnu sem kemur í veg fyrir að íbúum jarðarinnar séu tryggð grundvallarmannréttindi. Dauðsföllum af völdum loftslagsbreytinga fari fjölgandi og þessir menn hafi því blóð á höndum sér. Kristín Vala þekkir Sachs og segist sammála því sem hann skrifar um helgina. Þeir sem stuðli að dauða fjölmennra hópa skuli fara fyrir rétt og núna séum við að sjá byrjun á afleiðingum þess að hafa ekkert gert. Tíðir og stórir fellibyljir, miklar rigningar og flóð, þurrkar og skógareldar, bráðnun jökla og sjávarborðshækkun og súrnun sjávar. Allt þetta sé að gerast vegna of mikils magns af koltvísíringi í andrúmsloftinu. Og Sachs segir: „... að svona popúlisti eins og Trump skuli voga sér að efast um þessar niðurstöður núna þegar þúsundir vísindamanna eru búnir að vinna að þessu í áratugi, er náttúrulega fyrir neðan allar hellur“.
Kristín Vala var á fundi Rómarklúbbsins svokallaða í síðustu viku en það eru alþjóðleg samtök sem stofnuð voru fyrir 50 árum í því skyni að rannsaka samhengi mannfjölgunar og nýtingu auðlindar jarðar. Aðeins 100 meðlimir eru í klúbbnum og Kristínu Völu var boðin innganga í hann fyrir 3 árum. Fundurinn í síðustu viku var afar mikilvægur segir Kristín Vala en á honum
var samþykkt neyðaraðgerðaráætlun vegna loftslagsbreytinganna en hún verður birt opinberlega á vefsíðu klúbbsins á næstu dögum.