Netflix sýnir „lof mér að falla“ áhuga

Íslenska kvikmyndin „Lof mér að falla“ sló í gegn á kvikmyndahátíðinni í Toronto og er að vekja gríðarlega athygli erlendis og nú ljóst að hún á eftir að ferðast um heimsbyggðina á næstu vikum og mánuðum því viðræður eru langt komnar við fyrirtæki í mörgum stærstu mörkuðum heims eins og Frakklandi, Þýskalandi, Englandi, Danmörku og Bandaríkjunum þar sem Netflix eru að skoða myndina og hafa sýnt henni mikinn áhuga og mjög forvitnir um þau gríðarlega sterku viðbrögð sem myndin hefur fengið hér á landi og í Toronto.

Viðskiptablaðið segir frá þessu og sjá má á frétt hér á vb.is

Eftir kvöldið í kvöld verða ca. 30,000 gestir búnir að upplifa þessa mögnuðu mynd í kvikmyndahúsum landsins á innan við tveimur vikum sem er magnaður árangur. Lof mér að falla hefur fengið einróma lof gagnrýnenda og gesta - hér heima og erlendis. 

Leikstjóri, aðalleikarar og framleiðendur fylgja myndinni svo eftir á kvikmyndahátíðina Busan í S-Kóreu þar sem Lof mér að falla mun taka þátt í World Cinema hluta hátíðarinnar. Busan er stærsta kvikmyndahátíð Asíu og fer fram 4.-13.október - þetta er Asíu frumsýning myndarinnar.