Út er komin 92. Árbók Ferðafélags Íslands en hún fjallar að þessu sinni um Mosfellsheiði. Höfundar eru Bjarki Bjarnason, rithöfundur og smali á Hvirfli í Mosfellsdal, Jón Svanþórsson, rannsóknarlögreglumaður og göngugarpur úr Reykjavík, og Margrét Sveinbjörnsdóttir, menningarmiðlari frá Heiðarbæ og vefritstjóri á skrifstofu Alþingis. Bókina prýða fjöldi mynda sem Sigurjón Pétursson og Þóra Hrönn Njálsdóttir tóku af miklu listfengi.
Bjarki og Jón verða gestir Björns Jóns Bragasonar í umræðu- og fréttaskýringarþættinum 21 á Hringbraut í kvöld.
Mosfellsheiði er að mati höfunda vel falin útivistarperla í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Þarna hafa legið þjóðleiðir frá fornu fari sem vel eru gerð skil í bókinni.
Fram um 1900 voru nautgripir reknir á fjall. Í bókinni segir meðal annars frá Otta Ottasyni sem fæddur var 1630 og komst í hann krappan er griðungur tók á rás á eftir honum. Hann gekk að nautinu dauðu þar sem síðan heitir Bolalda. Fleiri örnefni á þessum slóðum minna á beitarland nautgripa.
Þá voru hreindýr á Mosfellsheiði fram á þriðja áratug síðustu aldar og þarna höfðust útilegumenn við. Frá þessu og ýmsu fleiru áhugaverðu segir í þætti kvöldsins.