Nafn mannsins sem lést af slysförum þann 27. júní

Maðurinn sem lést af slysförum þann 27. júní sl. þegar veghefill fór út af veginum upp á Ingjaldssandsvegi, Sandsheiði í Gerðhamarsdal, hét Guðmundur S. Ásgeirsson.

Hann var 57 ára gamall ekkjumaður. Hann lætur eftir sig þrjá uppkomna syni, tvær tengdadætur og þrjú barnabörn.

Synir hins látna vilja koma á framfæri þökkum til samstarfsmanna föður þeirra hjá Vegagerðinni sem og öllum viðbragðsaðilum sem komu að atvikinu.