Er hægt að lækna fólk af OCD eða þráhyggjuárátturöskun á fjórum dögum? Svo virðist vera því samkvæmt norskri meðferð sem hefur verið beitt á undanförnum fjórum árum hafa 70% þeirra 1.200 sem hafa tekið þátt í meðferðinni náð bata. Sama er uppi á teningnum hér á landi. Meðferðin er niðurgreidd af ríkinu í Noregi en ekki hér á Íslandi þar sem þjónusta sálfræðinga er ekki niðurgreidd af ríkinu, aðeins geðlækna.
OCD er geðröskun sem 2-3% mannkyns glímir við og líkt og Magnús Haraldsson, geðlæknir á Landspítalanum, bendir á í fræðigrein í Læknablaðinu er þráhyggjuárátturöskun á meðal þeirra 20 sjúkdóma sem líklegastir eru til þess að leiða til örorku hjá fólki yngra en 45 ára á Vesturlöndum.
Nokkur þúsund Íslendingar með þráhyggjuárátturöskun
OCD er ekki algeng kvíðaröskun en um leið dulin því margir skammast sín fyrir hana. Hugsanir og hegðun fólks með OCD valda oft miklum óþægindum, kvíða og skömm þar sem fólk þorir oft ekki að greina öðrum frá hugsunum sínum. Nokkur þúsund Íslendingar glíma við þráhyggjuárátturöskun, að sögn sálfræðinga hjá Kvíðameðferðarstöðinni (KMS).
Meðalaldur við upphaf einkenna er um 20 ár en algengt er að röskunin komi fram snemma á ævinni og í einni rannsókn lýsa um 20% einstaklinga því að einkenni hafi verið komin fram á æsku- eða unglingsárum.
Kynhlutföll eru því sem næst jöfn þegar allir aldurshópar eru skoðaðir en rannsóknir hafa sýnt að drengir eru líklegri en stúlkur til að greinast með þráhyggjuáráttu á barnsaldri.
Á bilinu 30-50% þeirra sem veikjast snemma eru jafnframt með tourette-heilkenni eða aðra kækjaröskun. Nokkrar rannsóknir hafa fundið mun á einkennamynd eftir kynjum. Þannig eru vísbendingar um að þráhyggja hjá konum tengist oftar ofbeldi, smithættu eða óhreinindum, en hjá körlum sé innihald þráhyggju oftar kynferðislegt eða trúarlegt.
Nánar á
Ekki hafa veriðgerðarfaraldsfræðilegar rannsóknir á algengi þráhyggjuárátturöskunar á Íslandi.