Mynd dagsins: sjáðu fjöldann á laugardalsvelli

Stórtónleikar Ed Sheeran á Laugardalsvelli í gærkvöldi fóru í alla staði mjög vel fram að mati Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og voru tónleikagestir til mikillar fyrirmyndar.

Samstarf lögreglunnar og þeirra sem komu að skipulagningu viðburðarins var sömuleiðis mjög gott, en innan við 15 mínútur liðu frá því að tónleikunum lauk og þar til síðustu gestirnir höfðu yfirgefið Laugardalsvöll.