Ýmislegt áhugavert kom fram á neðansjávarmyndum þegar leiðangursfólk á Bjarna Sæmundssyni kannaði lífríki hafsbotnsins í lok júní og byrjun júlí. Þar á meðal er þetta furðudýr sem fannst á Kötlugrunni og má sjá hér að ofan og fyrir neðan.
Dýrið er eins og sjá má ljósfjólublátt að lit og um 10 sentimetrar í þvermál. Fótur þess er ferkantaður og upp af honum stendur kambur með tvær raðir af öngum.
Steinunn Hilma Ólafsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun og leiðangurstjóri í hinum 11 daga langa leiðangri, segir í samtali við Morgunblaðið í dag að það sé sérstakt að finna óþekkt dýr þar sem kalla mætti grunnsævi.
„Maður hefði kannski frekar búist við þessu á 700 metra dýpi en þetta var á um 200 metra dýpi á Kötlugrunni, ekki langt frá landi og ekki mjög djúpt. Það var sérkennilegt að sjá eitthvað nýtt þar,“ segir Steinunn.
Hún segir að myndir af dýrinu verði sendar til erlendra vísindamanna í þeirri von að þeir geti greint það. Ekki er vitað hvort um nýja tegund botndýrs við strendur Íslands sé að ræða, en þekktar tegundir botndýra við Ísland eru yfir 3.000 talsins.