Mynd dagsins: hver er nú hvað?

Kjördæmisvika er nú í gangi og eru Alþingismenn á flakki um allt land að heimsækja sín kjördæmi. Þingmenn VG eru nú staddir á Dalvík og er fundur nú í gangi með íbúum þar. Á Facebook síðu Vinstrihreyfingarnar græns framboð, er birtist mynd af þremur þingmönnum VG sem munu vera á fundinum. Á myndinni sést hvar Katrín Jakobsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon og Kolbeinn Óttarsson Proppé stilla sér upp fyrir utan kaffihús Bakkabræðra og spurt er hver sé hvað.

\"Hér á Dalvík hefst opinn fundur með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra ásamt þingmönnum kjördæmisins og Kolbeini Óttarssyni Proppé klukkan 18. Fundurinn er haldinn á kaffihúsi Bakkabræðra. Hver er nú hvað?\"