Fjallkonan í ár var leikkonan Aldís Amah Hamilton. Flutti hún ljóðið á hátíðarstund á Austurvelli fyrr í dag í tilefni af þjóðhátíðardeginum 17. júní. Ljóð heitir:
„Landið flokkar ekki fólk.“
Er ljóð eftir tónlistarmanninn Bubba Morthens. Bubbi birti mynd af sér og Aldísi en hann segir:
„Aldís Amah Hamilton fjallkonan mín flutti ljóðið mitt.”
Á vef DV segir um Aldísi að hún hafi útskrifast frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Þá steig hún sín fyrstu skref á sviði sem Desdemóna hans Shakespeares. Ásamt því að starfa sem leikkona er Aldís líka flugfreyja hjá Icelandair. Hún hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi en hún lék meðal annars í sjónvarpsþáttunum Föngum. Þótti Aldís flytja ljóðið með miklum sóma og hefur hún hlotið lof fyrir víða á samfélagsmiðlum. Hér er hægt að hlusta á Aldísi flytja ljóðið.
Landið flokkar ekki fólk, eftir Bubba Morthens
Sjáðu
landið okkar allra
með mosamjúkan opinn faðminn
tekur okkur öllum eins og við erum
landið okkar flokkar ekki fólk
Sjáðu
við stiklum á hálum arfinum
kærleikurinn vex upp úr rauðu hafi hjartans
Í kvöld er stjörnurnar falla á spegilinn
og rökkurmjúk aldan ber þær að landi
skal ég tína upp þó ekki væri nema eina
til þess að minnast sumarkvölda norður í dumbshafi
Við skulum drekka sólargeisla saman að norðan
og sáldra yfir hann blágrýtismylsnu úr esjunni
og fagna fjölmenningu hér í miðnætursólinni
Múrar gera það sem múrar gera
loka þig inni
rammgerðastir eru þeir sem
reistir eru í höfðum manna
Rífum þá niður og göngum inn í víðáttu frelsisins
og fögnum lífinu
Sjáðu
sífellt bætast við blóm í garðinn
undursamlega fögur
hér eru auð rúm sem bíða barna
og drauma þeirra
Júníbjört nóttin mun þvo af þeim martröðina
og dögunin mun leiða þau inn í bjarta framtíð
Regnboginn hefur blessað börnin
silfurtært er málið í munni þeirra
hlustum á orð þeirra því dag einn
munum við hin eldri ganga í spor þeirra
Ég veit ekki alveg
hvað það þýðir
að vera Íslendingur
nema ég vakna dag hvern
með landið mitt á tungunni
Það dugar