Mynd dagsins er skjáskot af Twitter-síðu stórleikarans og Íslandsvinarins, Ben Stillers. Hann virðist vera mikill aðdáandi Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. DV vekur athygli á því að leikarinn hafi líkað við þrjár færslur Katrínar í gær á Twitter en sú nýjasta fjallar um vegan-landsfund Vinstri grænna.
Ármann Jakobsson, bróðir Katrínar vekur athygli á þessu og segir:
„Ekki vissi ég að Ben Stiller væri slíkur smekkmaður með góða dómgreind“.