Mynd dagsins: auðunn blöndal í skýjunum – rakel einn mesti nagli sem ég hef kynnst

Mynd dagsins að þessu sinni er af fjölmiðlamanninum Auðunni Blöndal. Auðunn og Rakel Þormarsdóttir eignuðust dreng fyrr í dag. Auðunn greinir frá því að móðir og barni heilsist vel. Sjálfur kveðst Auðunn vera hamingjusamasti maður í heimi í dag. Auðunn gaf Hringbraut góðfúslegt leyfi til að birta mynd af þeim feðgum. Hann segir:

„Veit ekki hvort ég sé elsti pabbi landsins, en get staðfest að ég er einn sá hamingjusamasti í dag! Móðir, sem er mesti nagli sem ég hef kynnst, og barni, sem ég þekki ekkert en hlakka til að kynnast, heilsast vel eftir langa og erfiða fæðingu.“

Hringbraut óskar parinu til hamingju!