Mörg þúsund aftur í vinnu vegna virk

Ný þáttaröð hóf göngu sína á Hringbraut á miðvikudagskvöldið 7.nóvember, um VIRK starfsendurhæfingarsjóðinn. Fyrsti þáttur af fjórum var á dagskrá klukkan 20 í kvöld, miðvikudagskvöldið. Þættirnir eru í umsjón Lindu Blöndal og Friþjófs Helgasonar.

Í fjögurra þáttaröð um VIRK er fjallað um sjóðinn sem hefur komið þúsundum manna aftur inn á vinnumarkað eftir veikindi eða slys. Upphafið að Virk og árangur – Saga Virk verður á hverju miðvikudagskvöldi næstu vikurnar.

Í fyrsta þættinum er rætt við Vigdísi Jónsdóttur framkvæmdastjóra og ráðgjafana Ágústu Guðmarsdóttur, Elfu Hrund Guttormsdóttur, Eymund Garðar Hannesson og Ágúst Sigurður Óskarsson en öll starfa þau ólíkum landshlutum.

VIRK var stofnað fyrir tíu árum síðan og er  fyrir einstaklinga sem búa við skerta starfsgetu en stefna að meiri þátttöku á vinnumarkaði – eða vilja komast í fyrsta sinn í vinnu. 

Um 7500 einstaklingar hafa komist aftur til vinnu með hjálp sjóðsins– VIRK hefur sparað mönnum þungar þrautir og þjóðfélaginu marga milljarða króna.

 Árið 2008 stofnuðu Alþýðusamband Ísland og Samtök atvinnulífsins sérstakan sjóð í því skyni að koma einstaklingum sem veikjast aftur inn á vinnumarkaðinn. Stuttu síðar komu stéttarfélög og atvinnurekendur á opinberum vinnumarkaði einnig að sjóðnum sem hlaut nafnið VIRK starfsendurhæfingarsjóður. Um 15.000 manns hafa leitað til VIRK frá upphafi. Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun, fjármögnuð að stærstum hluta af fyrirtækjum í atvinnulífinu og lífeyrissjóðum sem greiða samkvæmt lögum hvor um sig 0,10 prósent af heildarlaunagreiðslum í sjóðinn auk þess sem ríkið leggur fram árlegt framlag.