Morðingi lennons sækir um reynslulausn

Mark David Chapman sem myrti John Lennon hefur sótt um reynslulausn í tíunda sinn síðan hann myrti Lennon þann 8.desember 1980. Síðast var beiðni hans hafnað fyrir tveimur árum. 

Chapman hlaut 20 ára til lífstíðardóm og hefur sótt um reynslulausn annað hvert ár frá árinu 2000.  Yoko Ono hefur í hvert sinn lagst gegn reynslulausn með bréfi til yfirvalda.

Chapman er sextíu og þriggja ára og segist ekki lengur glíma við andlegt ójafnvægi.