Icelandair Group hefur gert miklar breytingar á skipulagi félagsins og nýtt skipurit hefur tekið gildi. Meðal annars eru gerðar breytingar á framkvæmdastjórn. Eftir breytingarnar mun starfsemi Icelandair skiptast í átta svið sem samanstanda af fjórum kjarnasviðum og fjórum stoðsviðum. Mbl.is greinir frá.
Kjarnasviðin fjögur verða sölu- og þjónustusvið, flugrekstrarsvið, flugflutningasvið og flugvélaleiga og ráðgjöf. Stoðsviðin fjögur verða fjármálasvið, mannauðssvið, stafræn þróun og upplýsingatækni og flugfloti og leiðarkerfi. Framkvæmdastjórar þessara átta sviða munu mynda framkvæmdastjórn Icelandair ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra félagsins.
Icelandair Group er móðurfélag Icelandair, Loftleiða, Icelandair Hotels, Fjárvakurs og Iceland Travel og hefur verið tekin ákvörðun um að undirbúa sölu á Iceland Travel.