Mikill meirihluti landsmanna vill fjölga eftirlitsmyndavélum

Samkvæmt könnun sem Zenter rannsóknir framkvæmdu fyrir Fréttablaðið vill mikill meirihluti landsmanna fjölga eftirlitsmyndavélum um landið. 67,5 prósent landsmanna eru hlynntir slíkri fjölgun og rúmlega 12 prósent andvígir. Þá eru rúmlega 20 prósent hvorki hlynntir né andvígir fjölgun eftirlitsmyndavéla.

„Ég skil þörfina fyrir öryggistilfinningu en mér finnst þetta ferli við fjölgun myndavéla þurfa að vera uppi á borðum. Við megum ekki vakna upp við vondan draum einn daginn þar sem yfirvöld geta fylgst með ferðum allra án þess það hafi verið rætt hvers konar umfang er eðlilegt í slíku eftirliti,“ segir Katrín Atladóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í samtali við Fréttablaðið. Hún bætir við að örar tæknibreytingar búi sífellt til ný álitamál um rafrænt eftirlit.

Eftirlitsmyndavélum fjölgað undanfarið ár

Lög­reglu­emb­ætti um land allt og Neyð­ar­línan hafa undanfarið ár átt í samstarfi við sveitarfélög um fjölgun eft­ir­lits­mynda­véla. Kjarninn greinir frá því að í maí í fyrra hafi virkar ­eftirlitsmyndavél­ar á vegum lög­regl­unnar á höfuð­borg­ar­svæð­inu verið 34 talsins.

„Lögreglan hefur komið með tillögur um staðsetningu eftirlitsmyndavéla í Reykjavík og það er í kostnaðarferli. Samkomulaginu um um öryggismyndavélarnar er þannig háttað að borgin kaupir vélarnar og útvegar ljósleiðarasamband, Neyðarlínan ber ábyrgð á uppsetningu og viðhaldi og lögreglan annast vöktun,“ útskýrir Kristinn J. Ólafsson, verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Fréttablaðið.

Fleiri konur vilja fjölga eftirlitsmyndavélum

Í könnun Zenter reyndist lítill munur á afstöðu fólks eftir búsetu, menntunarstigi og tekjum. Eftir því sem þátttakendur voru eldri voru þeir hlynntari fjölgun eftirlitsmyndavéla. Auk þess voru konur líklegri en karlar til að vilja fjölga eftirlitsmyndavélum; vildu 75 prósent kvenna slíka fjölgun en 60 prósent karla.

Á meðal stuðningsmanna allra stjórnmálaflokka mældist stuðningur við fjölgun eftirlitsmyndavéla yfir 50 prósentum, að undanskildum stuðningsmönnum Pírata. Á meðal stuðningsmanna Pírata eru 47 prósent hlynntir fjölgun eftirlitsmyndavéla og þar er einnig andstaða mest, en 24 prósent þeirra eru andvígir fjölgun.